Skip to main content

Fréttir

David Håkansson heldur fyrirlestur 6. maí


David Håkansson, lektor við sænskudeildina í Háskólanum í Växjö í Svíþjóð, heldur fyrirlestur um efni doktorsritgerðar sinnar á vegum Íslenska málfræðifélagsins miðvikudaginn 6. maí kl. 16-17 í Öskju 128. Ritgerðina varði hann við norrænudeildina í Háskólanum í Lundi á síðasta ári og nefnist hún: ,,Syntactic Variation and Change. Subjectless Clauses in Old Swedish".