Mikið verður um að vera í Eddu á degi íslenskrar tungu enda ekki annað við hæfi í byggingu þar sem fengist er við rannsóknir á íslensku máli og menningararfi.
Kl. 12–13
málið.is 10 ára
Vefgáttin málið.is fagnar 10 ára afmæli í fyrirlestrasalnum með stuttri dagskrá kl. 12.
Þar verður meðal annars stiklað á stóru um tildrög, notkun og þróun vefgáttarinnar undanfarinn áratug, sagt frá nýjungum í framsetningu og nokkrum gagnasöfnum sem nýlega hafa bæst við.
Kl. 13–16
Opið í safnkennslustofunni
Tekið verður á móti gestum á öllum aldri í safnkennslustofunni Sögu á 1. hæð. Þar verður hægt að búa til sinn eigin upphafsstaf og skreyta í stíl íslenskra fornrita, klippa saman furðuverur, leika, lesa og lita.
Kl. 15
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og viðurkenning íslenskrar tungu
Dagskrá á vegum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins á bókasafninu í Eddu.