Skip to main content

Fréttir

Dagur íslenskrar tungu

Degi íslenskrar tungu verður fagnað í fjórtánda sinn 16. nóvember 2009. Fastlega má gera ráð fyrir að flestir skólar landsins og margar aðrar stofnanir og samtök fagni deginum með einhverju móti.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hvetur skóla og aðrar stofnanir, sem og landsmenn alla, til að huga að því að nota 16. nóvember, eða dagana þar í kring, til að hafa íslenska tungu sérstaklega í öndvegi. Hægt er að fagna deginum með margvíslegu móti, t.d. upplestri, ritunarsamkeppni, verðlaunum og viðurkenningum, handritasýningum, bókakynningum, samkomum af ýmsum toga og tónlistarflutningi svo að fátt eitt sé nefnt.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur falið Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum að annast ýmsa verkþætti í tengslum við viðburði á degi íslenskrar tungu 2009. Þeir sem vilja kynna viðburði sína á vef dags íslenskrar tungu eru hvattir til að senda upplýsingar á netfangið rosasve@hi.is. Þangað má jafnframt beina fyrirspurnum um hvað eina sem varðar hátíðisdaginn.

Minnt er á vef dags íslenskrar tungu:

www.menntamalaraduneyti.is/menningarmal/dit/

Þar má m.a. finna hugmyndabanka kennara og upplýsingar um Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar sem mennta- og menningarmálaráðherra afhendir árlega 16. nóvember.

Nýr opinber fánadagur á Íslandi.
Degi íslenskrar tungu var í fyrra bætt við íslensku fánadagana. Á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember, skal sem sé draga fána að hún við hús opinberra stofnana.