Skip to main content

Fréttir

Dagur íslenskra tungu

 

Degi íslenskrar tungu, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, verður fagnað í nítjánda sinn sunnudaginn 16. nóvember 2014.

Þá skal draga fána að hún á húsum opinberra stofnana.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hvetur skóla og aðrar stofnanir, sem og landsmenn alla, til að huga að því að nota 16. nóvember, eða dagana þar í kring, til að hafa íslenskuna alveg sérstaklega í öndvegi.

Hægt er að minnast dagsins með margvíslegu móti, t.d. upplestri, leikþáttum, útgáfu, verðlaunum, viðurkenningum, handritasýningum, bóka- og rithöfundakynningum, tónlistarflutningi og samkomum af ýmsu tagi.

Minnt er á vefinn www.menntamalaraduneyti.is/menningarmal/dit/ og Facebook-síðu dags íslenskrar tungu.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur falið Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum að annast ýmsa verkþætti í tengslum við viðburði á degi íslenskrar tungu 2014. Þeir sem vilja kynna viðburði sína á vef dags íslenskrar tungu eru hvattir til að senda upplýsingar

á netfangið dagur.islenskrar.tungu@hi.is. Þangað má jafnframt beina fyrirspurnum um hvað eina sem varðar hátíðisdaginn.

Með virisemd og virðingu,
Illugi Gunnarsson
mennta- og menningarmálaráðherra

Ari Páll Kristinsson
f. h. Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum