Skip to main content

Fréttir

Birgitta Wallace

Þjóðminjasafn Íslands. Mynd í eigu Þjóðminjasafnsins.

 

Miðvikudaginn 26. mars nk. klukkan 12 mun Birgitta Wallace, sérfræðingur í fornleifarannsóknum, halda erindi í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Birgitta fjallar m.a. um landnám og búsetu norrænna manna á Vínlandi fyrir rúmlega þúsund árum og ferðalög þeirra um austurströnd Norður-Ameríku. Fyrirlesturinn er á ensku, er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

Birgitta starfaði með Helge Ingstad að uppgreftri sem fram fór á L‘Anse aux Meadows um og eftir 1960 þar sem fundust fyrstu áþreifanlegu sönnunargögn um búsetu víkinga í Ameríku. Þá stjórnaði hún síðasta uppgreftri sem þar fór fram og hefur birt niðurstöður víðtækra rannsókna þaðan. Wallace hefur sett fram rökstuðning fyrir staðsetningu á ýmsum stöðum sem nefndir eru í Eiríkssögu rauða og Grænlendingasögu. Þannig telur hún að Straumfjörður, Leifsbúðir og L‘Anse aux Meadows sé einn og sami staðurinn.

Birgitta kemur hingað til lands á vegum Þjóðræknisfélags Íslendinga og mun halda fjóra fyrirlestra um rannsóknir sínar. Hún verður í Víkingaheimum í Reykjanesbæ 27. mars, í Skagafirði 29. mars og í Háskólanum á Akureyri 30. mars.