Skip to main content

Fréttir

Auglýsing um styrki

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum auglýsir styrki Snorra Sturlusonar fyrir árið 2011 lausa til umsóknar. Styrkirnir eru veittir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum (ekki háskólastúdentum) á sviði hugvísinda til að dveljast á Íslandi í þrjá mánuði hið minnsta í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir miðast að öllu jöfnu við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega til og frá Íslandi og dvalarkostnaði innanlands. Af tveimur jafnhæfum umsækjendum skal að jafnaði sá hljóta styrk sem er frá Austur- og Suður-Evrópu, Asíu, Afríku, Rómönsku Ameríku eða Eyjaálfu.

Stofnunin greiðir götu styrkþega meðan á Íslandsdvöl þeirra stendur og í lok hennar skulu styrkþegar skila stofnuninni greinargerð um hvernig styrknum var varið.

Í umsókn sinni skulu umsækjendur gera stutta en rækilega grein fyrir tilgangi með dvöl á Íslandi, dvalartíma, svo og menntun og störfum.

Umsóknir sendist stofnuninni í pósti (ekki tölvupósti) fyrir 1. nóvember 2010.

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Stofa Sigurðar Nordals
Pósthólf 1220
121 Reykjavík

Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu stofnunarinnar: