Skip to main content

Fréttir

Aravísur. Nýtt afmælisrit frá Mettusjóði

Starfsmenn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefa til gamans út fjölrituð smárit til heiðurs samstarfsmönnum sínum og öðrum kollegum er þeir eiga merkisafmæli. Síðustu árin hafa þessi rit verið kennd við Menningar- og minningarsjóð Mette Magnussen, en eiginkona Árna Magnússonar hét Mette.

Út er komið ritið Aravísur. Sungnar Ara Páli Kristinssyni fimmtugum 28. september 2010. Ritið inniheldur stuttar og skemmtilegar greinar fræðimanna og félaga Ara Páli til heiðurs.

Umsjón með útgáfunni höfðu Jóhannes B. Sigtryggsson og Kári Kaaber.