Skip to main content

Fréttir

Alþjóðlegt fornsagnaþing á Íslandi

Dagana 12.–17. ágúst næstkomandi verður 17. alþjóðlega fornsagnaþingið haldið í Reykjavík og Reykholti. Yfirskrift þess og aðalviðfangsefni er Íslendinga sögur en þess verður einnig minnst í dagskrá þingsins að um þessar mundir eru 900 ár liðin frá upphafi lagaritunar á Íslandi.

Til alþjóðlegu fornsagnaþinganna var stofnað af Hermanni Pálssyni prófessor sem gekkst fyrir fyrsta þinginu árið 1971 í Edinborg. Næst var blásið til þings í Reykjavík árið 1973 og það hefur síðan verið haldið á þriggja ára fresti víða um heim, síðast í Sviss. Fjöldi fræðimanna og stúdenta víðs vegar að sækir þingið og er gert ráð fyrir um 350 þátttakendum að þessu sinni.

Á þinginu í ágúst verða flutt yfir 200 erindi um hvaðeina sem tengist uppruna, þróun og list Íslendinga sagna en auk þess munu hátt í 40 fræðimenn ræða um lög og samfélag í málstofum undir yfirskriftinni „Með lögum skal land byggja“.

Þrír sérstakir hátíðarfyrirlestrar verða á þinginu: Carol Clover, prófessor emerita við Kaliforníuháskóla í Berkeley, flytur fyrirlestur mánudaginn 13. ágúst kl. 9.30 sem nefnist „Proving facts in Njáls saga“. Miðvikudaginn 15. ágúst kl. 9 mun Lena Rohrbach, prófessor við háskólana í Zürich og Basel flytja fyrirlestur sem hún nefnir „Canon and Archive: Icelandic Legal Manuscripts, Premodern Textuality and Concepts of the Law“, og föstudaginn 17. ágúst kl. flytur Andrew Wawn, prófessor emeritus við háskólann í Leeds, fyrirlesturinn „Njála in Svarfaðardalur, c. 1773“. Hátíðarfyrirlestrarnir verða haldnir í Háskólabíói (stóra salnum) og eru öllum opnir meðan húsrúm leyfir.

Að 17. alþjóðlega fornsagnaþinginu standa Háskóli Íslands, Snorrastofa og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og hefur 17 manna nefnd starfsmanna þessara stofnana unnið að undirbúningi þess undir forystu Svanhildar Óskarsdóttur. Auk stofnananna hafa ríkisstjórn Íslands, Alþingi og Reykjavík–bókmenntaborg stutt myndarlega við þingið og styrkir hafa einnig fengist frá íslenskum fyrirtækjum og norrænum sjóðum.

Nánari upplýsingar um þingið má nálgast hér.  Skráningarfrestur er til 1. ágúst næstkomandi.