Árnastofnun gefur út rafrænt fréttabréf á íslensku til að miðla upplýsingum um starfsemi stofnunarinnar, nýjar útgáfur, fyrirlestra, rannsóknarverkefni, viðburði og fleira. Fyrsta rafræna fréttabréfið var sent út í janúar 2012. Fréttabréfið kemur út mánaðarlega nema í júlí og desember og er sent þeim sem stofnunin hefur á lista yfir áskrifendur. Gerast áskrifandi.
Fréttabréf 2024
Rafræn fréttabréf frá árunum 2002–2017 eru aðgengileg á vefsafni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Þar er einnig hægt að nálgast ensk fréttabréf á PDF-sniði sem gefin voru út á árunum 2006–2009.