Námskeið
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum sér um námskeið í íslensku fyrir erlenda nemendur og sumarskóla í handritafræðum í samvinnu við Kaupmannahafnarháskóla.
Styrkir
Stofnunin annast styrki Snorra Sturlusonar en þeir eru boðnir árlega erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Einnig annast stofnunin umsýslu styrkja menningar- og viðskiptaráðuneytis til erlendra stúdenta til íslenskunáms við Háskóla Íslands.
Aðstaða og íbúð
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum býður innlendum og erlendum fræðimönnum og stúdentum, sem vinna að verkefnum á fræðasviði hennar, aðgang að söfnum stofnunarinnar og aðstöðu til rannsókna.
Stofnunin hefur til umráða íbúð sem erlendir fræðimenn, er koma til Íslands til að sinna rannsóknum, geta fengið afnot af við vægu gjaldi.
Stofnunin hefur til umráða íbúð sem erlendir fræðimenn, er koma til Íslands til að sinna rannsóknum, geta fengið afnot af við vægu gjaldi.
Fræðimannaskrá
Fræðimannaskrá Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum inniheldur upplýsingar um á sjöunda hundrað fræðimanna í íslenskum fræðum um allan heim.
Tilvitnun í efni á vef og gagnasöfn
Á síðunni eru leiðbeiningar um hvernig megi vitna í efni á vef stofnunarinnar og gagnasöfn hennar.