Skip to main content

Forstöðumaður

Forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er Guðrún Nordal, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda.

 

Guðrún Nordal

Guðrún Nordal lauk BA-prófi í íslensku frá heimspekideild Háskóla Íslands 1982, stundaði nám við Ludwig Maximiliens Universität München á árunum 1982–1983 og lauk D. phil frá Oxford University (Christ Church College) árið 1988.

Guðrún var lektor við University College London 1990–1993, rannsóknarstyrkþegi við Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi frá 1993, og loks fræðimaður við sömu stofnun 1997–2001. Hún var dósent í íslenskum bókmenntum fyrri alda við heimspekideild Háskóla Íslands frá 2001 og prófessor við hugvísindadeild frá 2005.

Guðrún hefur gegnt fjölmörgum stjórnunar- og trúnaðarstörfum fyrir íslenskt vísindasamfélag, var formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs og formaður stjórnar Rannsóknasjóðs 2006–2015 og stjórnarformaður NordForsk 2009–2014.

Hún er nú formaður stýrihóps um endurskoðun vísindakerfisins, og situr m.a. í stjórn Almannaróms, Hins íslenzka fornritafélags og Fróðskaparsetursins í Færeyjum.