Skip to main content

Viðburðir

Viltu vita meira? Tarot-lestur í Eddu

Tarotspil norrænna goðsagna.
SSJ

Komdu og láttu spá fyrir þér í Eddu! Það eru takmörkuð spádómspláss og eru gestir því beðnir að mæta tímanlega og skrá sig við komu. Svo er kjörið að skoða handritasýninguna Heimur í orðum í leiðinni.

Um Völvuna og tarotspilin

Æsandi æsir munu æða um ganga Eddu þegar Úlfhildur Dagsdóttir, rithöfundur, bókmenntafræðingur og afkomandi ásatrúar, gerist óvænt völva og les í Tarotspil norrænna goðsagna eftir listakonuna Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur.

Tarotspil Kristínar eru auðug uppspretta innsæis í víðfeðman heim ásatrúar og tarothefðarinnar. Tarotspilin eiga sér fjölskrúðuga sögu og segja sjálf sögur jafnt af mikilfenglegum goðmögnum sem og hversdagslegum atvikum.

Úlfhildur hefur lesið í tarotspil í áratugi en kemur nú út úr skápnum sem völva. Hún var ekki skírð Jörmun Gunnur eftir Jörmungandi og harmar það enn. Samt eru norrænu goðmögnin henni nákomin og hún fagnaði því ákaft þegar Kristín Ragna gaf út Tarotspil norrænna goðsagna.

Viðburður á Facebook

2026-02-21T14:00:00 - 2026-02-21T15:00:00