Upphafsmálþing Íslenska málsýnabankans fer fram í fyrirlestrasal Eddu þriðjudaginn 25. ágúst frá klukkan 14 til 17.
Þar eru á dagskrá, auk kynningar á Íslenska málsýnabankanum, fyrirlestrar frá erlendum samstarfsaðilum verkefnisins innan Speech Accessibility Project og DELAD-átaksins.
Fjallað verður um nýtingu á máltækni- og gervigreindarlausnum í þágu fólks með tal- og máltruflanir og áhersla lögð á uppbyggingu gagnainnviða.
2026-08-25T14:00:00 - 2026-08-25T17:00:00