Skip to main content

Viðburðir

Umsóknarfrestur fyrir sumarnámskeið Nordkurs

Norkurs. Komdu á sumarnámskeið á Norðurlöndunum.

Háskólanemum frá Norðurlöndunum stendur til boða að sækja Nordkurs-námskeið í tungumálum og menningu sem jafngilda 10 ECTS-einingum á BA-stigi.

Umsóknarfrestur er til 1. mars.

Námskeiðin eru haldin ár hvert við mismunandi háskóla á Norðurlöndunum á tímabilinu maí til ágúst og standa yfir í þrjár til fjórar vikur í senn.

Háskólanemar sem stunda nám við íslenska háskóla geta sótt um þátttöku án endurgjalds en greiða aðeins ferðakostnað og uppihald sjálfir.

Upplýsingar um námskeiðin má nálgast á heimasíðu Nordkurs (á dönsku).

Nánari upplýsingar veitir fulltrúi Nordkurs á Íslandi, Branislav Bédi (branislav.bedi@arnastofnun.is). 
 

2026-03-01T23:45:00