Stígðu inn í heim miðalda í Eddu!
Dagskrá
Kl. 17
Hundur í óskilum opnar Safnanótt í Eddu
Þau Hjörleifur Hjartarson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Eiríkur Stephensen flytja tónlist úr leikverkinu Niflungahringurinn – allur sem sýnt hefur verið á fjölum Borgarleikhússins.
Kl. 18–21
Stuttar leiðsagnir um heim handritanna
Kannaðu leyndardóma fornritanna í fylgd sérfræðinga á sýningunni Heimur í orðum. Svanhildur Óskarsdóttir og Haukur Þorgeirsson hafa umsjón með leiðsögninni.
Safnkennari Árnastofnunar kallar til sín völvu sem leiðir unga gesti inn í heim handritanna.
Kl. 17.30–21
STÓRIR STAFIR
Búðu til þinn eigin upphafsstaf og skreyttu í stíl íslenskra fornrita. Tekið verður á móti gestum á öllum aldri í safnkennslustofunni Sögu á 1. hæð.
Kl. 17–22
Ýmir býður upp á girnileg tilboð í bæði mat og drykk.
Ókeypis verður inn á sýninguna Heimur í orðum kl. 17–22.
Síðasta sýningarhelgi fyrir handritaskipti. Stærsta íslenska miðaldahandritið Flateyjarbók er nú til sýnis ásamt fleiri kjörgripum.
