Miðvikudaginn 25. september verður ný útgáfa Beygingarlýsingar íslensks nútímamáls (BÍN) opnuð í Hannesarholti.
Máltæknisjóður veitti styrk til endurgerðar og endurskipulagningar BÍN-gagnagrunnsins haustið 2017. Vinna við verkið hófst á útmánuðum 2018. Nú er nýja gerðin tilbúin og verður kynnt í Hannesarholti 25. september kl. 15:30.
Guðrún Nordal býður gesti velkomna.
Eiríkur Rögnvaldsson segir frá upphafi Beygingarlýsingar íslensks nútímamáls.
Kristín Bjarnadóttir kynnir og sýnir nýjan og endurskipulagðan vef.
Vilhjálmur Þorsteinsson segir frá notkun á gögnum úr BÍN í máltækni hjá Miðeind.
Að kynningu lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.
Starfsmenn við verkið eru Kristín Bjarnadóttir (ritstjóri), Kristín Ingibjörg Hlynsdóttir, Samúel Þórisson, Steinþór Steingrímsson og Trausti Dagsson.