Nafnaþing Nafnfræðifélagsins verður haldið laugardaginn 31. október kl. 13–15.30 í fyrirlestrasal Eddu. Að þessu sinni er yfirskrift þingsins Með örnefni í farteskinu. Þingið er haldið í samstarfi við Árnastofnun.
Dagskrá Nafnaþings
13–13.10 Þingið sett – minningarorð um Svavar Sigmundsson
13.15–13.45 Einar Skúlason: Hvað heitir þetta? Örnefni í breyttu landslagi
13.45–14.15 Þóra Ellen Þórhallsdóttir: Örnefni í Árbókum Ferðafélags Íslands
14.15–14.45 Anna Melsteð: Örnefni á Eyrbyggjuslóð
14.45–15.15 Gísli Sigurðsson: Atburður, saga og örnefni – eða bara örnefni og engin saga, hvað þá atburður? Í hvaða röð gerist þetta eiginlega?
15.15 Kaffiveitingar
Ágrip erinda
Einar Skúlason, fararstjóri og MA í þjóðfræði: Hvað heitir þetta? Örnefni í breyttu landslagi
„Hvað heitir þetta?“ er spurning sem leiðsögumenn fá gjarnan þegar athygli göngufólks beinist að einhverju í landslaginu. En hvers vegna hafa sumir staðir nöfn en aðrir ekki? Hvað ræður því hvaða fyrirbæri í landslaginu fólk telur ástæðu til að nefna og hvernig breytist það með nýjum atvinnuháttum og breyttri landnotkun?
Í erindinu er fjallað um tengsl örnefna við athafnir fólks og hvernig breytt notkun landslagsins getur haft áhrif á það hvaða örnefni lifa áfram, hver falla í gleymsku og hvar þörf verður fyrir ný nöfn. Með dæmum úr gönguferðum og rannsóknum á gömlum leiðum er velt upp spurningum um hvernig ólík verkefni og athafnir fólks hafa áhrif á sýn þess á landslagið. Þar mætast verkefnalandslag fyrri tíma og landslag samtímans, þar sem útivist og afþreying skapa nýjar leiðir til að upplifa og túlka umhverfið. Jafnframt er hugað að því hvernig örnefni geta sjálf vakið hughrif og mótað væntingar til staða áður en komið er á vettvang.
Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor emerita við Háskóla Íslands: Örnefni í Árbókum Ferðafélags Íslands
Árbækur Ferðafélags Íslands hafa nú verið gefnar út óslitið í næstum heila öld. Langflestar fjalla um tiltekin svæði, s.s. sýslur, og sjálft kallar félagið ritröðina „altæka Íslandslýsingu“. Gerð var lausleg könnun á því hversu mikið rými örnefni fá í árbókum FÍ með samanburði á völdum bókum af ólíkum svæðum. Þá er reynt að greina hvaða gildi örnefni geta haft fyrir gönguglaða félaga í FÍ og sem almennt innlegg í landlýsingu. Í seinni hluta erindisins verður vikið að efnistökum í árbók sem nú er í smíðum um Skaftárhrepp. Tekin verða dæmi um óræð og torskilin örnefni sem ætla má að veki vangaveltur, týnd örnefni sem vitna um löngu horfið mannlíf og síðast en ekki síst, mikilvægi örnefna sem heimildir um umhverfisbreytingar.
Anna Melsteð, þjóðfræðingur: Örnefni á Eyrbyggjuslóð
Undanfarin fimm ár hefur Eyrbyggjusögufélag starfað á Snæfellsnesi og komið af stað verkefnum í tengslum við söguna sem er sannkölluð héraðssaga Snæfellsness. Námskeið um Eyrbyggju, fyrirlestrar, myndrefill byggður á sögunni, leshópar og sögugöngur eru meðal þeirra verkefna sem stofnað hefur verið til og eru orðin fastur liður í starfseminni. Sögugöngur félagsins hafa verið vinsælar og heimafólk sýnt þeim mikinn áhuga auk þess sem sérstakar ferðir um söguslóðirnar hafa verið farnar. Í leshóp um Eyrbyggja sögu hafa umræður um örnefni og staði sögunnar verið líflegar. Í kjölfarið hafa þær umræður haldið áfram í göngum á söguslóðir sögunnar víða um Snæfellsnes.
Eyrbyggjusögufélagið og starf þess hefur gert það að verkum að vakning hefur orðið hjá heimafólki um söguna með þátttöku í verkefnum félagsins og fært söguheiminn nær almenningi á fjölbreyttan hátt. Sannarlega hefur starfsemi félagsins vakið athygli á Eyrbyggju út fyrir Snæfellsnes og hefur sá áhugi farið stigvaxandi.
Í fyrirlestrinum á Nafnaþingi verður horft til viðburða félagsins sem snúa að örnefnum í Eyrbyggja sögu.
Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor við Árnastofnun: Atburður, saga og örnefni – eða bara örnefni og engin saga, hvað þá atburður? Í hvaða röð gerist þetta eiginlega?
Löng hefð er fyrir því að rýna í upprunasögur Landnámu og Íslendingasagna og skýringar þeirra á örnefnum; oft með sögum af atburðum sem hafi orðið tilefni örnefnis eða af einstaklingum sem hafi búið eða komið við, lífs eða liðnir, á tilteknum stað og skilið nafn sitt eftir í landslaginu. Hin almenna þróun í fræðunum hefur sveiflast frá því að trúa öllu í þessum textum yfir í að hafna því að þeir geti með nokkru móti verið heimild í sagnfræðilegum skilningi um það sem þeir segja frá. Mörgum hefur jafnvel dottið í hug, og haft þá hugdettu sína fyrir satt, að þeir sem stóðu að ritun textanna hafi einungis þekkt örnefnin í landslaginu og búið til persónur og atburði út frá þeim, án þess að hafa nokkurn tímann heyrt eina einustu sögu um svipuð efni. Í erindi mínu mun ég velta fyrir mér hvernig þessu gæti hafa verið háttað á öllum þeim öldum sem liðu frá því að landið var numið og þangað til fólk byrjaði að láta skrifa sögur um það sem það mundi frá þeim löngu liðnu dögum – og hafði þá ekki aðrar heimildir að styðjast við en það sem annað fólk gat sagt þeim af því sem það hafði heyrt frá öðrum um landið sem það hafði haft fyrir augunum allan tímann og um ættir fólksins sem hafði búið á því sama landi frá því að það var numið.