Skip to main content

Viðburðir

Málþing um heilaga Agnesi á messudegi hennar

Freska sem sýnir heilaga Agnesi í Helsingjalandi.
Freska sem sýnir heilaga Agnesi í Helsingjalandi.
Lennart Karlsson, The Swedish History Museum

Í tilefni af útkomu bókarinnar Agnesarkver sem væntanleg er hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum á þessu ári verður haldið málþing miðvikudaginn 21. janúar nk. í fyrirlestrasal Eddu.

Þar munu fimm fræðimenn fjalla um heilaga Agnesi frá ýmsum sjónarhornum.

Nánar um bókina

AGNESARKVER er útgáfa á kvæðum ortum á Íslandi eftir siðbreytingu sem rekja sögu heilagrar Agnesar. Þetta eru Vísur af heilagri jómfrú Agnesi; Rímur af Agnesi píslarvott eftir sr. Eirík Hallsson (1614–1698); Agnesarvísa og Agnesarkvæði eftir Þorvald Magnússon (1670–1741).

Rúmlega 120 handrit koma við sögu í þessari útgáfu en auk þess eru varðveittar rúmlega 20 upptökur á vefnum ismus.is þar sem Agnesarkvæði er sungið, flutt eða rætt. Útgefandi Agnesarkvers er Natalie van Deusen, prófessor í Edmonton í Kanada. Hún skrifar ítarlegan inngang um heilaga Agnesi og auk þess fylgir öllum textunum stuttur inngangur eftir hana.

Fyrirlestrar á málþingi

  • Natalie van Deusen: Agnesarkver: Saint Agnes of Rome in Post-Medieval Icelandic Verse
  • Margaret Cormack: St. Agnes in Iceland
  • Hildur Hákonardóttir: Sögur af lambi

Kaffihlé.

  • Torfi Tulinius: Hárprýði og virðing kvenna í Ragnars sögu loðbrókar
  • Katelin Parsons: Raulað um raunir í Rómarborg: Agnesarkvæði í munnlegri geymd

Fundarstjóri: Margrét Eggertsdóttir.

Viðburður á Facebook.

2026-01-21T15:00:00 - 2026-01-21T17:00:00