Skip to main content

Viðburðir

Málþing um fyrsta máltölvunarverkefnið: Tíðni orða í Hreiðrinu

Orðstæðulykill að Hreiðrinu. Fimm bindi hvert ofan á öðru.
SSJ

Árið 1972 hófst fyrsta tilraunin til þess að nota tölvur til rannsókna á íslensku máli og markaði upphaf tölvustuddra tungumálarannsókna hér á landi.

Viðburðurinn er sá fyrsti í röð á vegum Máltækniseturs og CLARIN-IS sem haldinn verður á næstu misserum og fjallar um sögu, upphaf og þróun íslenskrar máltækni. Markmiðið er að varpa ljósi á frumkvöðlaverkefni, fólkið á bak við þau og þann fræðilega og tæknilega jarðveg sem nútímalausnir byggja á.

Fundarstjóri er Steinþór Steingrímsson.

 

Dagskrá

16–16.30 Tíðni orða í Hreiðrinu: frumraun í íslenskri máltölvun

Stefán Ólafsson rekur sögu verkefnisins Tíðni orða í Hreiðrinu, frá aðdraganda og markmiðum, til forritunar á gataspjöldum, tæknilegra áskorana og niðurstaðna. Dregin verður upp mannleg og söguleg mynd af fyrstu tilraun til sjálfvirkrar úrvinnslu á íslensku ritmáli.

16.30–16.50 Hvað fylgdi í kjölfarið?

Sigrún Helgadóttir fjallar um nokkur verkefni sem voru unnin í Íslenskri málstöð og víðar í framhaldi af orðtíðniverkefninu fram undir aldamótin 2000, til dæmis gerð orðskiptiforrits, gerð biblíulykils og tölvuvinnslu íðorðasafna.

16.50–17.30 Boðið verður upp á kaffi og veitingar ásamt tækifæri til samræðna.

Viðburðurinn er opinn öllum og aðgangur er ókeypis.

Viðburður á Facebook.

2026-01-28T16:00:00 - 2026-01-28T17:30:00