Málþing verður haldið á vegum Nafnfræðifélagsins í safnaðarheimili Neskirkju 15. október kl. 13–16.30.
Dagskrá
13.00 Birna Lárusdóttir formaður félagsins setur málþingið
13.10 Páll Björnsson, prófessor í sagn- og nútímafræði við Háskólann á Akureyri: Ættarnöfn á Íslandi − Ágreiningsefni í 170 ár
13.40 Þorvaldur Björnsson, Náttúrufræðistofnun Íslands: Skráning fugla, spendýra og örnefna á eyjum og skerjum á Breiðafirði
14.10 Birna Rún Sævarsdóttir, MA í menningarfræði: Að bera nafn með rentu. Um nöfn Íslendinga af erlendum uppruna
14.40 Kaffihlé
15.00 Gylfi Helgason, fornleifafræðingur á Fornleifastofnun Íslands: Buslað í Gvendarbrunnum. Landsháttafræðilegt sjónarhorn
15.30 Birna Lárusdóttir, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum: Loforð og svik. Grunngögn örnefnasafnsins
16.00 Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands: Götunöfn í Reykjavík
Þingið er haldið í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.