Málstofa: Signe Hjerrild Smedemark
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
23. október kl. 15.30
Árnagarði við Suðurgötu, stofu 311
Signe Hjerrild Smedemark, forvörslufræðingur við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, flytur fyrirlestur í annarri málstofu vetrarins. Fyrirlesturinn verður á dönsku og kallast:
„Den bevaringsmæssige tilstand af håndskriftssamlingen.“
Signe hóf störf í sumar og mun í fyrirlestrinum lýsa hvernig varðveislu handritanna er nú almennt háttað á stofnuninni og ástandi einstakra handrita og fjalla um vandamál í þessu sambandi.
Signe er menntuð í forvörslufræðum við Det Kongelige Danske Kunstakademis Skole for Arkitektur, Design og Konservering og Gautaborgarháskóla. Hún vann áður sem forvörslufræðingur á Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn.