Norræn samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis, sem stofnunin á aðild að, heldur vorfund sinn í Björgvin 24. mars. Hlutverk nefndarinnar er að efla kennslu í Norðurlandamálum erlendis og styðja menningarkynningu og upplýsingamiðlun, sem norrænir sendikennarar og erlendir samstarfsmenn þeirra sinna við háskólastofnanir í norrænum málum og bókmenntum, bæði innan og utan Norðurlanda.
2017-03-24T09:00:00 - 2017-03-24T12:50:00