Skip to main content

Viðburðir

Fundur íslenskulektora sem starfa erlendis

26.–27. maí
2017
kl. 09–14

Fundur íslenskulektora sem starfa erlendis

Árlegur fundur íslensku sendikennaranna erlendis verður haldinn í Gautaborgarháskóla, 26.–27. maí. Alþjóðasvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum annast skipulag fundarins og undirbúning hans í samráði við íslenskulektorana erlendis. Á fundinum verður rætt um kennslu í íslensku fyrir útlendinga, kennslufræði tungumála, kennslubækur í íslensku fyrir útlendinga, íslenska menningarkynningu erlendis og íslensk fræði.

2017-05-26T09:00:00 - 2017-05-27T14:00:00