Laugardaginn 26. september eru 110 ár síðan einn ástsælasti teiknari Íslendinga, Halldór Pétursson, fæddist. Hann er meðal annars þekktur fyrir frábærar skopmyndir sem birtust í Speglinum og Morgunblaðinu, myndlýsingar í fjölda kennslubóka og barnabóka, forsíðuteikningar í Vikunni og snjalla túlkun sína á heimsmeistaraeinvíginu í skák sem fram fór hérlendis 1972. Færri vita að Halldór var frumkvöðull í gerð myndasagna sem byggðust á íslenskum fornsögum.
Á árunum 1959 til 1961 birti Morgunblaðið eftir hann og Kristján J. Gunnarsson tvær framhaldsmyndasögur, Njálsbrennu og hefnd Kára og Grettissögu. Þessar sögur hafa nú í fyrsta skipti verið gefnar út í heild sinni á bók hjá Froski útgáfu. Ritstjórar eru Bjarni Hinriksson, Jean Posocco og Jón Karl Helgason en útgáfan hefur notið velvilja og stuðnings frá afkomendum Halldórs og Kristjáns og ritstjórn Morgunblaðsins.
Í tilefni af afmælinu og þessari nýju útgáfu efna Árnastofnun, Félag íslenskra teiknara, Morgunblaðið og Froskur útgáfa til afmælisfagnaðar í Eddu 26. september kl. 13–15. Þar fjalla þau Brynja Þorgeirsdóttir bókmenntafræðingur, Karl Blöndal aðstoðarritstjóri og Stefán Pálsson sagnfræðingur um þessa miklu dýrgripi sem sögurnar tvær eru en einnig verður gestum gefinn kostur á að segja frá kynnum sínum eða sinna af Halldóri og verkum hans. Í kjölfarið verður boðið upp á veitingar.