Svanhildur Óskarsdóttir flytur fyrirlestur í Eddu í tengslum við handritasýninguna.
Frá og með 10. nóvember verður sjaldséð gersemi á sýningunni Heimur í orðum. Það er agnarlítið handrit frá 15. öld sem Árni Magnússon fékk í Flatey á Breiðafirði og fór með til Kaupmannahafnar. Af ókunnum orsökum hvarf það úr safni hans, komst í eigu þýsks bókasafnara en var síðan selt á uppboði í Lundúnum árið 1870 og prýddi um hríð einkabókasafn jarlsins af Crawford í Haigh Hall í Lancashire. Í fyrirlestrinum verður fjallað um handritið, efni þess og sögu.
2025-11-25T12:00:00 - 2025-11-25T13:00:00