Hátíðardagskrá mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum standa að viðburði:
Áhrifavald íslenskunnar
Hátíðardagskrá öllum opin í Gamla bíói á degi íslenskrar tungu
16. nóvember 2019.
Listamenn og áhrifavaldar beina athyglinni að tungumálinu – hver á sinn hátt.
Húsið verður opnað kl. 15.00 – dagskrá hefst 15.30 og lýkur um kl. 16.30.
Fram koma: Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Jakob Birgisson, Hundur í óskilum, Vilhelm Netó, GDRN, Auður og fulltrúi Radda, lesari úr Stóru upplestrarkeppninni.
Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, veitir
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og sérstaka viðurkenningu á degi íslenskrar tungu.
Frumsýnt verður myndbandsverkið orðasúpa íslenskunnar, þar sem 80 mælendur bera fram sjaldséð íslensk orð, og í anddyri Gamla bíós verða gagnvirka sýningin Óravíddir orðaforðans og Eldfjallasjá Veðurstofu Íslands sem varpar ljósi á framlag náttúruskáldsins Jónasar Hallgrímssonar til vísindanna. Sönghópur frá Listaháskóla Íslands stýrir fjöldasöng og veggir verða skreyttir túlkun grunnskólabarna á skemmtilegum íslenskum orðum. Kl. 17.00 birtist síðan í myrkrinu glóandi orðalistaverk á glerhjúpi tónlistarhússins Hörpu í tilefni dagsins.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.