Notað og nýtt
Ársfundur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
8. maí 2019, kl. 8–10
Hótel Sögu, Kötlusal
Síðastliðin misseri hefur verið unnið markvisst að því að bæta aðgengi að gögnum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Á fundinum verða kynntar margvíslegar nýjungar við miðlun á menningararfinum og tengdum rannsóknum, hvort sem litið er til örnefna eða orðaforða, bókmennta eða tungumálakennslu. Boðið verður upp á morgunmat frá kl. 8.
Dagskrá:
8.00 Morgunmatur
8.30 Fundur settur
Dagný Jónsdóttir, formaður stjórnar stofnunarinnar, flytur ávarp
Guðrún Nordal forstöðumaður stofnunarinnar segir frá starfinu undanfarin misseri og ársskýrslunni
Trausti Dagsson verkefnisstjóri: Nýjungar Árnastofnunar á veraldarvefnum
Árni Davíð Magnússon, starfsmaður við rafræna útgáfu á Orðabók Blöndals: Blöndal til framtíðar
Birna Lárusdóttir, sérfræðingur í rannsóknarstöðu Sigurðar Nordals: Örnefnin og hugmyndir okkar um heiminn
Haraldur Bernharðsson, dósent við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og forstöðumaður Miðaldastofu: Íslensk miðaldafræði of veröld víða
Branislav Bédi verkefnisstjóri: Íslenskukennsla í sýndarheimum
Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, flytur ávarp
Fundarstjóri er Eva María Jónsdóttir
Vinsamlegast skráið ykkur á fundinn á vefnum: