Ársfundur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum verður haldinn 16. maí á Hótel Sögu, Kötlusal, kl. 8.15-10. Á fundinum verður fjallað um áskoranir og tækifæri íslenskunnar á 21. öld. Fjallað verður um ISLEX, íslensk-skandinavíska veforðabók sem var opnuð í fyrra og hefur nú verið aðlöguð fyrir spjaldtölvur og síma. Sagt verður frá notendum Icelandic Online, örnefnasjá og máltækni. Einnig verður litið inn um skráargat til fornbókmennta og hlustað á söngraddir af vaxhólkum.
Allir eru velkomnir.
Gestir eru beðnir að skrá sig fyrir hádegi 15. maí.
2012-05-16T08:15:00 - 2012-05-16T10:00:00