Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum
Kaupmannahöfn
7.–18. ágúst 2017
Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum er haldinn í Kaupmannahöfn 7.-18. ágúst. Er þetta í fjórtánda sinn sem boðið er upp á slíkt sumarnám en handritaskólinn er haldinn til skiptis í Reykjavík og Kaupmannahöfn.
Nánari upplýsingar um skráningu og fleira er að finna á heimasíðu Kaupmannahafnarháskóla en sumarskólinn er meðal annars skipulagður í samstarfi við handritasvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Auglýstur umsóknarfrestur var til 1. apríl.
2017-08-04T09:00:00 - 2017-08-18T17:00:00