Íslenskunámskeið
Háskóla Íslands
3.–28. júlí 2017
Dagana 3.–28. júlí halda Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, alþjóðasvið, og Hugvísindasvið Háskóla Íslands alþjóðlegt námskeið í nútímaíslensku. Um 35 erlendir stúdentar sækja námskeiðið. Auk íslenskunámsins hlýða þeir á fyrirlestra um íslenskt samfélag og menningu og heimsækja sögustaði á Suður- og Vesturlandi. Alþjóðleg sumarnámskeið í íslensku eru haldin hvert ár.
2017-07-03T09:00:00 - 2017-07-28T17:00:00