Skip to main content

Viðburðir

Alþjóðlegt sumarnámskeið í íslensku

2.–27. júlí
2018
kl. 09–14

Reykjavík
Ísland

Dagana 2.–27. júlí halda Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, alþjóðasvið, og Hugvísindasvið Háskóla Íslands alþjóðlegt námskeið í nútímaíslensku. Um 35 erlendir stúdentar sækja námskeiðið. Auk íslenskunámsins hlýða þeir á fyrirlestra um íslenskt samfélag og menningu og heimsækja sögustaði á Suður- og Vesturlandi. Alþjóðleg sumarnámskeið í íslensku eru haldin hvert ár. Þetta er 30. námskeiðið sem SSN heldur.

2018-07-02T09:00:00 - 2018-07-27T14:00:00