Skip to main content

Viðburðir

Alþjóðlegt námskeið í nútímaíslensku

2.–27. júlí
2007
kl. 09–17

Fjögurra vikna alþjóðlegt sumarnámskeið í íslensku hefst þann 2. júlí.  Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum efnir til námskeiðsins í samvinnu við hugvísindadeild. Þetta er í 21. skipti sem slíkt námskeið er haldið í Háskóla Íslands. Um 35 erlendir stúdentar sækja námskeiðið. Auk íslenskunámsins hlýða nemendur á fyrirlestra um íslenskt samfélag og menningu og heimsækja sögustaði á Suður- og Vesturlandi. Alþjóðleg sumarnámskeið í íslensku eru haldin ár hvert. Nánari upplýsingar á ensku.

2007-07-02T09:00:00 - 2007-07-27T17:00:00