Skip to main content

Viðburðir

Alþjóðlegi safnadagurinn í Eddu

 Í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum verður sýningin Heimur í orðum opin mánudaginn 18. maí kl. 10–17. 

Boðið verður upp á hlustunarpartí í safnkennslustofunni á 1. hæð en þar geta gestir valið úr upptökum af Ísmúsvefnum eftir landsvæðum. 

Alþjóðlegi safnadagurinn er haldinn 18. maí ár hvert en ICOM, Alþjóðaráð safna, hefur staðið fyrir deginum síðan árið 1977. Yfirskrift safnadagsins í ár er: Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi. Á safnadeginum verður jafnframt tilkynnt hvaða safn af þeim fimm sem tilnefnd eru til Íslensku safnaverðlaunanna í ár hreppir hnossið. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hlaut tilnefningu í ár fyrir sýninguna Heimur í orðum. 

Safnadagur 2026
2026-05-18T10:00:00 - 2026-05-18T17:00:00