Skip to main content

Úr fórum orðabókarmanns

Útgáfuár
2010
Úr fórum orðabókarmanns er safn greina eftir Ásgeir Blöndal Magnússon. Ásgeir Blöndal starfaði um áratuga skeið við Orðabók Háskólans og varð landskunnur fyrir útvarpsþætti sína um íslenskt mál sem hann annaðist ásamt samstarfsfólki sínu við Orðabókina um árabil. Í orðabókarstarfinu viðaði Ásgeir að sér mikilli þekkingu á íslenskum orðaforða sem bar ríkulegan ávöxt í hinu mikla verki hans Íslenskri orðsifjabók sem kom út árið 1989. Ásgeir miðlaði af þekkingu sinni í ræðu og riti, birti lengri og skemmri pistla um uppruna og skyldleika orða og ritaði greinar um ýmis viðfangsefni í íslenskri málfræði. Áhugamönnum um íslenskt mál er mikill fengur að þessari bók því að hér er samankomið á einn stað nálega allt það sem Ásgeir birti um íslenskt mál um aldarþriðjungs skeið. Fyrir utan orðfræðiritgerðir og aðrar málfræðiritgerðir hans má nefna að í bókinni er einnig kverið Um hljóðvarp og klofningu og ritdómur hans um Altnordisches etymologisches Wörterbuch eftir Jan de Vries.


Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefur greinasafn Ásgeirs út í minningu þess að haustið 2009 voru liðin hundrað ár frá fæðingu hans.

Efnisyfirlit

Inngangur

Orðfræði

Úr fórum Orðabókarinnar
I. Dyfra; Dysma(st) yfi r; Freykja; Greppur; Roppugoð; Trýja
II. Þúa, oggþóa, ofþóa; Tasaldi, tasaldalegur
III. Doka, dok; Heigull; Ýja; Þiðrandi, þiðrandalegur; Dobía, dubbíó,
dibbíó; Hosiló; Óráðsía
IV. Billa; Humbaldi; Kelsi; Æja, æingur
V. Ábrystir, bresta á, brysta (á), brystingur; Elgur, elgja; Kjöllur, kjaldur;
Epja, epjast, epjulegur; Hnósi, hnós, hnjósi, hnosi
Orð af orði
Gregg, grogg og grögg; Þeimur; Dósi og dósa
Kál og kála; Véli, vélakind, vélasauður; Ríll kk. ‘skríll; geldfé’
Nokkrar orðskýringar
Um íslensk askheiti
Í börk viðar
Um ifjar og iðjar
Um ögurstund
Ritdómar
Jan de Vries: Altnordisches etymologisches Wörterbuch
Ferdinand Holthausen: Vergleichendes und etymologisches Wörterbuch
des Altwestnordischen
Málfræði

Endurtekningarsagnir með t-viðskeyti í íslenzku
Um framburðinn rd, gd, fd
Um geymd íslenzkra orða
Um hljóðvörp og klofningu
Um sérhljóðabreytingar á undan samhljóðaklösum með l-i
Nokkrar minjar um kringdan framburð. y, ý og ey í íslensku
Skrár

Skammstafanir
Ritaskrá
Íslensk orðaskrá

Bókin er gefin út í ritröðinni Rit Árnastofnunar (Rit 76).
Kaupa bókina