Skip to main content

Sýnisbók þess að Ísland er ekki barbaraland

Útgáfuár
2022
Specimen Islandiæ non barbaræ (Sýnisbók þess að Ísland er ekki barbaraland) er bókmenntasögulegt rit, samið á latínu af Jóni Þorkelssyni (1697–1759) Skálholtsrektor. Markmið þess er að sýna hinum lærða heimi að Íslendingar séu menntuð bókmenntaþjóð. Sigurður Pétursson (1944–2020) þýddi verkið á íslensku en Hjalti Snær Ægisson bjó verkið til útgáfu. Útgáfan er tvímála og henni fylgja skýringar.

Ritstjórar eru Margrét Eggertsdóttir og Guðvarður Már Gunnlaugsson.

Bókin er gefin út í ritröðinni Rit Árnastofnunar (Rit 109).
Kaupa bókina