Útgáfuár
2025
Í þessari bók er fjallað um hvernig Árni breytti fjölmörgum handritum í safni sínu með því að taka þau í sundur og setja hluta þeirra saman á nýjan hátt. Rannsakað er hvers konar breytingar hann gerði, hvernig hann fór að og hver tilgangur hans eða áform kunna að hafa verið.
Hér er um að ræða kódikólógíska – handritafræðilega – rannsókn þar sem saga handritasafnsins og breytingar Árna Magnússonar eru í forgrunni. Hún byggir aðallega á pappírshandritum frá 17. öld og upphafi 18. aldar en eldri skinnhandrit bera einnig merki um að hafa verið breytt af hendi Árna.
Jafnframt er sýnt fram á að hann var ekki sá eini sem breytti handritum; aðrir eigendur og forsjármenn, bæði fyrir hans tíma og eftir, aðlöguðu handskrifaðar bækur að sínum þörfum. Því endurspeglar hið efnislega form handritanna í safni Árna – og þá sérstaklega hvaða textum er raðað saman – oft fremur áherslur og markmið síðari tíma aðila en hinar upphaflegu fyrirætlanir.
Með þessu dýpkar bókin verulega þekkingu okkar á sögu handritasafns Árna Magnússonar og eykur skilning á því hvernig handritin eru samsett í dag.
Þetta er yfirgripsmikið fræðirit sem höfundurinn, Beeke Stegmann, byggir á doktorsritgerð sinni um handritasafn Árna Árna Magnússonar en Beeke starfar sem rannsóknardósent við Árnastofnun.
Bókin er gefin út í ritröðinni Rit Árnastofnunar (Rit 121).