Útgáfuár
2024
Komin er út ensk þýðing á rannsókn danska þjóðlagafræðingsins Svend Nielsens á tilbrigðum í rímnakveðskap, en hún kom út á íslensku 2022. The Rímur Poetry of Ten Kvæðamenn: Research on Variations er gefin út sem rafbók þannig að hægt er að hlusta á dæmi um kveðskapinn, en bókin segir frá söfnun og rannsókn á rímnakveðskap tíu kvæðamanna á árunum 1964–1971. Kveikjan að rannsókninni voru ummæli sem séra Bjarni Þorsteinsson viðhafði í inngangi að rímnalögunum sem hann birtir í bók sinni Íslenzk þjóðlög sem út kom 1906–1909. Þar talar hann um að sum rímnalög verði til á augnablikinu, kvæðamaðurinn hefur þá ekkert visst lag í huga áður en hann byrjar en býr lagið til um leið og hann kveður. Spurningin var hvort enn þá væri hægt að finna kvæðamenn sem færu þannig með kvæðalög og leitin bar árangur. Með fylgir inngangur þar sem settar eru fram skilgreiningar á rímum, bragarháttum, skáldamáli og rímnalögum og bent á frekari heimildir auk þess sem rannsókn Svend Nielsens er sett í samhengi við aðrar skandinavískar rannsóknir á munnlegum flutningi kvæða. Philip Roughton þýddi bókina.
Bókin er í opnum aðgangi og hægt er að nálgast hana rafrænt.
Bókin er í opnum aðgangi og hægt er að nálgast hana rafrænt.