Útgáfuár
2026
Tuttugasta og áttunda hefti tímaritsins Orðs og tungu er komið út og aðgengilegt öllum í rafrænu formi á vefsíðu tímaritsins.
Í þessu hefti birtast fjórar ritrýndar greinar þar sem fjallað er um athyglisverðar rannsóknir á ýmsum sviðum málvísinda og nafnfræði:
Veturliði Óskarsson og Þorsteinn G. Indriðason gera ítarlega grein fyrir myndun sagna, aðallega af nafnorðum, í orðasambandinu SÖGN + yfir sig.
Ágústa Þorbergsdóttir og Kristín Ingibjörg Hlynsdóttir fjalla um myndun nýrra orða og beina þar sjónum að svokallaðri blöndun, þ.e. orðum eins og hrútskýring, skjáhætta og frískápur.
Þóra Björk Hjartardóttir fjallar um gamalt kennslurit í íslensku eftir Jón Ólafsson úr Grunnavík þar sem dæmi um samskipti kaupmanns og viðskiptavinar eru greind út frá nýlegum kenningum í samtalsfræði.
Að lokum gerir Aðalsteinn Hákonarson grein fyrir sögu og þróun örnefnaskráa tveggja bæja, Kasthvamms og Árhvamms, og beitir þar textafræðilegum aðferðum.
Auk ritrýndra greina er einnig að finna í heftinu þrjár óritrýndar smágreinar:
Ari Páll Kristinsson fjallar um sögu skipulegrar málfarsráðgjafar á Íslandi.
Kristín Ingibjörg Hlynsdóttir og Ágústa Þorbergsdóttir rita um niðurstöður úr könnun um viðhorf almennings til nýyrða og nýyrðastarfs.
Í síðustu smágreininni fjalla Jóhannes B. Sigtryggsson og Ellert Þór Jóhannsson um vinnu við stafræna gerð dansk-íslenskrar orðabókar Konráðs Gíslasonar frá 1851.
Að lokum má finna ritfregnir um tvær nýlegar færeyskar bækur sem fjalla um færeyska tungu í sögulegu ljósi.
Ritstjórar eru Ellert Þór Jóhannsson og Jóhannes B. Sigtryggsson.
Prentaða útgáfu heftisins má nálgast í bókabúðum eða panta hjá Bóksölu stúdenta.
Sækja sem PDF skrá