Skip to main content

Ljóðmæli 5. Vísur og veraldleg kvæði sr. Hallgríms

Útgáfuár
2023
Út er komið fimmta bindið í fræðilegri heildarútgáfu á verkum Hallgríms Péturssonar (1614–1674). Efni þessa bindis eru lausavísur og nokkur lengri kvæði, flest gamansöm. Vísurnar fjalla oft um hversdagslega hluti eins og mat og matarneyslu og stundum um misskiptingu veraldlegra gæða. Sumar lýsa barnaleikjum, aðrar eru heillaóskir og einnig eru hér gátur í vísnaformi. Lausavísur eru oft tengdar ákveðnu atviki og hafa yfirleitt varðveist í munnlegri geymd lengi áður en þær voru skrifaðar upp enda eru lausavísur Hallgríms yfirleitt varðveittar í yngri handritum en annar kveðskapur hans. Texti hvers kvæðis er prentaður stafréttur eftir aðalhandriti eða prentaðri útgáfu en orðamunur úr öðrum handritum er birtur neðanmáls. Gerð er rækileg grein fyrir varðveislu hvers kvæðis auk þess sem handritunum sem við sögu koma er lýst í sérstakri skrá. Þetta er lokabindið í þeim hluta útgáfunnar sem nefnist Ljóðmæli. Margrét Eggertsdóttir, Karl Óskar Ólafsson og Kristján Eiríksson önnuðust útgáfuna en ritstjóri bókarinnar er Þórunn Sigurðardóttir. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefur bókina út en Háskólaútgáfan annast dreifingu.

Bókin er gefin út í ritröðinni Rit Árnastofnunar (Rit 111).