Skip to main content

Íslenskar bænir fram um 1600

Útgáfuár
2018
ISBN númer
9789979654438
Íslenskar bænir fram um 1600 hefur að geyma elstu bænir á íslensku, bæði stakar bænir og heilar bænabækur sem varðveittar eru í handritum, sumar í Árnasafni en margar hverjar í erlendum handritasöfnum. Miðað er við árið 1600 vegna þess að upp frá því taka prentaðar bænabækur æ meir við hlutverki bænabóka í handritum. Ýmsar stakar bænir hafa verið gefnar út áður á prenti en bænabækurnar ekki, nema prentuð bænabók Guðbrands Þorlákssonar frá 1576 sem er með í útgáfunni. Bænatextunum fylgir ítarlegur inngangur, skýringar og skrár, bæði nafnaskrá og skrá yfir upphöf bæna. Einnig eru í bókinni myndir úr handskrifuðum bænabókum.

Svavar Sigmundsson prófessor emeritus sá um útgáfuna, ritaði inngang og samdi skýringar. Svavar er einkum þekktur fyrir rannsóknir sínar á íslenskum örnefnum, en vinnan að bænabókinni hófst fyrir mörgum árum þegar hann starfaði við norrænu fornmálsorðabókina og síðar sem sendikennari við Árnastofnun í Kaupmannahöfn.

Bókin er gefin út í ritröðinni Rit Árnastofnunar (Rit 96).
Kaupa bókina