Hinn 2. júní 2006 samþykkti Alþingi Íslendinga lög um Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Samkvæmt þeim voru Íslensk málstöð, Orðabók Háskólans, Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, Stofnun Sigurðar Nordals og Örnefnastofnun sameinaðar frá og með 1. september 2006. Hin nýja stofnun tók við skyldum stofnananna fimm og þeim verkefnum sem þær sinntu. Dr. Vésteinn Ólason var skipaður í embætti forstöðumanns stofnunarinnar þann 12. september 2006. Vésteinn var áður forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar á Íslandi.
Hér má lesa um ævi og störf Árna Magnússonar sem stofnunin er kennd við.