Skip to main content

Fréttir

Viðurkenningar á sviði málræktar

Árlega veitir Íslensk málnefnd viðurkenningar fyrir eitthvað sem vel er gert á svið málræktar eða líklegt er til að efla íslenska tungu.

Á málræktarþingi Íslenskrar málnefndar sem haldið var 30. september og bar yfirskriftina Íslenskukennsla á 21. öld fengu eftirtaldir aðilar viðurkenningu:

Ólöf Ása Benediktsdóttir fyrir frumkvöðlastarf í íslenskukennslu.
Sævar H. Bragason fyrir frumkvöðlastarf í fræðslu í náttúruvísindum á íslensku.
Retor Fræðsla (Aneta M. Matuszewska, Hjalti Ómarsson og Beata Líf Czajkowska) fyrir frumkvæði í íslenskukennslu fullorðinna innflytjenda. 

Á myndinni eru handhafar viðurkenninganna ásamt Ármanni Jakobssyni, formanni Íslenskrar málnefndar, og Evu Maríu Jónsdóttur varaformanni.