Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur frá árinu 2018 valið orð ársins á grundvelli gagna sem stofnunin safnar um málnotkun jafnt og þétt allt árið. Við valið er tölfræðilegum aðferðum beitt til að greina þau orð sem eru áberandi í málinu og velja úr orð sem koma til greina. Með hliðsjón af þessum gögnum er síðan orð ársins ákveðið.
Orðin sem komu til greina við val á orði ársins 2025 eru: tollastríð, fjölþáttaógnir og fjölþáttaárásir, gímald, kjarnorkuákvæði, skuggafloti og frelsisfloti, ofbeldisvandi, gervigreindarkapphlaup, virðismat, vók/vókismi og vangreiðslugjald sem jafnframt var valið orð ársins.
Orðið vangreiðslugjald var áberandi á árinu í tengslum við umræðu um bílastæðamál og var réttmæti gjaldsins umdeilt. Um er að ræða gjald sem bílastæðafyrirtæki innheimta þegar ekki er greitt fyrir gjaldskylt bílastæði innan tiltekins tímaramma. Ef greiðsla berst ekki innan tilskilins tíma er rukkun send til skráðs eiganda ökutækisins og vangreiðslugjaldið leggst ofan á stöðugjaldið, þ.e. gjald vegna vangreiðslu.
Þótt orðið vangreiðslugjald sé tiltölulega nýtt má finna það í fréttum um bílastæðamál á árunum 2011 og 2018. Orðið vangreiðsla er þó ekki nýtt en er algengara í lagamáli en almennu máli. Í Íslenskri nútímamálsorðabók er vangreiðsla skýrt sem ’of lág greiðsla’.
Sjá nánar í grein um orð ársins á mannamal.is.
