Sýningin Heimur í orðum var tilnefnd til Íslensku safnaverðlaunanna 2026 en verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum á Alþjóðlega safnadeginum 18. maí. Frú Halla Tómasdóttir forseti Íslands afhenti verðlaunin sem féllu að þessu sinni í skaut Listasafns Íslands.
Í tilnefningu segir:
„Sýningin Heimur í orðum var opnuð í nóvember 2024 á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Megintilgangur hennar er að opna fyrir gestum hinn annars lokaða heim handritanna og varpa ljósi á fjölbreytt og ríkulegt innihald þeirra með aðgengilegri og vandaðri framsetningu í máli og myndum. Þar gegna fornar sögur og þekkt kvæði lykilhlutverki en jafnframt er sjónum beint að ýmsum öðrum textum sem endurspegla hugmyndaheim fyrri kynslóða um líf sitt, umhverfi og samfélag.
Sýningin hverfist um sköpun í víðum skilningi, annars vegar sköpun heimsins og hins vegar sköpun handrita, en einnig þá sífelldu endursköpun sem á sér stað í tungumálinu. Lögð er áhersla á fjölbreyttar miðlunarleiðir til að gera efnið lifandi og aðgengilegt fyrir ólíka hópa gesta á öllum aldri. Auk þess að skoða handrit geta gestir kafað í texta í gegnum snertiskjái, horft á kvikmyndir, hlustað á upplestur og tekið þátt í gagnvirkum þáttum.
Markmið sýningarinnar eru skýr og mikilvæg og þeim náð með faglegum og markvissum hætti. Sýningin hvetur til víðsýni, sköpunar og lærdóms með því að varpa ljósi á fjölbreytileika tungumáls, menningar og sögu þjóðarinnar.“
