Skip to main content

Fréttir

Styrkir Snorra Sturlusonar veittir í tuttugasta og þriðja sinn

Snorri Sturluson. Mynd: Kristín M. Jóhannsdóttir.

 

Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlusonar, 23. september 1991, ákvað ríkisstjórn Íslands að efna til styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Samkvæmt reglum um styrkina, sem gefnar voru út 1992, skulu þeir árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir skulu veittir í þrjá mánuði hið minnsta og miðast við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega og dvalarkostnaði innanlands.

Styrkir Snorra Sturlusonar fyrir árið 2015 voru auglýstir í júlí sl. með umsóknarfresti til 1. nóvember. Sextíu  og tvær umsóknir bárust frá tuttugu og níu löndum.

Í úthlutunarnefnd styrkjanna eiga sæti Úlfar Bragason, rannsóknarprófessor, formaður, Ásdís Egilsdóttir prófessor og Pétur Gunnarsson rithöfundur. Nefndin hefur nú lokið úthlutun.

Þau sem hljóta styrki árið 2015, til þriggja mánaða dvalar hvert, eru:

Rasa Baranauskiené, lektor í sænsku og íslensku við Vilniusháskóla, til að þýða Njáls sögu á litáísku.

Alison Finlay, prófessor í enskum og íslenskum miðaldabókmenntum við Lundúnaháskóla, til að vinna að þýðingu á Sturlunga sögu á ensku.

Oleksandr Mykhed, dósent í ritlist við Taras Shevchenco þjóðarháskólann í Kænugarði, til að skrifa bók um samtímamenningu hér á landi.