Skip to main content

Fréttir

Styrkir Snorra Sturlusonar veittir í 25. sinn

Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlusonar, 23. september 1991, ákvað ríkisstjórn Íslands að hefja veitingu styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Samkvæmt reglum um styrkina, sem gefnar voru út 1992, skulu þeir árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir skulu veittir í þrjá mánuði hið minnsta og miðast við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega og dvalarkostnaði innanlands.

Styrkir Snorra Sturlusonar fyrir árið 2017 voru auglýstir í júlí sl. með umsóknarfresti til 1. nóvember. Áttatíu og tvær umsóknir bárust frá þrjátíu  og fjórum löndum.

Í úthlutunarnefnd styrkjanna eiga sæti Úlfar Bragason rannsóknarprófessor, formaður, Ásdís Egilsdóttir, prófessor emeritus og Pétur Gunnarsson rithöfundur. Nefndin hefur nú lokið úthlutun.

Þau sem hljóta styrki árið 2017, til þriggja mánaða dvalar hvert, eru:

Dr. Tamas Beregi, rithöfundur í Búdapest í Ungverjalandi til að skrifa bók um efni sem tengist sögu Íslands á 18. og 19. öld.

Dr. Lorenzo Lozzi Gallo, dósent í norrænum fræðum við háskólann í Messínu á Ítalíu, til að vinna að þýðingum á Íslendingabók og Landnámu á ítölsku og skýringum.

Dr. Sian Elizabeth Grønlie, dósent í miðaldafræðum við Oxfordháskóla, til að rannsaka þýðingar helgisagna á íslensku og áhrif þeirra á íslenska sagnaritun á miðöldum.