Skip to main content

Fréttir

Skáldaskraf á aðventu með Einari Kárasyni

JL húsið, Hringbraut 121.

 

Fréttatilkynningin frá Félagi íslenskra fræða.

Miðvikudaginn 12. desember mun Einar Kárason ræða nýútkomna bók sína Skáld, þriðju og síðustu skáldsöguna í þrílógíu sinni um Sturlungaöld, en hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2009 fyrir bókina Ofsa í sömu þrílógíu. Einnig mun Einar viðra kenningar sínar um höfund Njálu.

Skáldaskrafið verður miðvikudaginn 12. desember í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, 4. hæð, kl. 20.

Allir velkomnir!
Félag íslenskra fræða