,,Sæmundarstund” verður við styttuna af Sæmundi á selnum eftir Ásmund Sveinsson myndhöggvara á flötinni fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands á hádegi þriðjudaginn 20. mars kl. 12:30-13.
Dagskrá
- Háskólakórinn hefur leikinn
- Vésteinn Ólason, prófessor (emeritus) fyrrverandi forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, flytur ávarp
- Börnin á Mánagarði syngja
- Sara Sigurðardóttir, formaður Stúdentaráðs flytur ávarp
- Kristjana Björk Traustadóttir, formaður Kennó Stúdentafélags Menntavísindasviðs HÍ, kemur og tekur við ,,Sæmundi"
- Börnin á Mánagarði syngja
- Slit