Á hverju ári velur Árnastofnun orð ársins. Hefur stofnunin komið að vali á orði ársins síðan 2015. Fyrstu árin var það gert í samvinnu við RÚV og Mími – Félag stúdenta í íslenskum fræðum en árið 2018 skildu leiðir og Árnastofnun og RÚV völdu orð ársins hvort í sínu lagi. Til þess beita stofnanirnar mismunandi aðferðum. RÚV hefur farið þá leið að leyfa lesendum Rúv.is að tilnefna tíu orð og kjósa á milli þeirra en Árnastofnun byggir val sitt á gögnum í Risamálheildinni sem gefa vísbendingar um breytta strauma í orðaforðanum.
Í ár velur Árnastofnun orð ársins í tíunda sinn. Valin eru tíu orð sem talin eru hafa minnt á árið með einhverjum hætti og eitt staðið upp úr.
Orð ársins 2024, sem talið er hafa staðið upp úr er Hraunkæling.
Hraunkæling
Seinustu ár hafa einkennst af eldsumbrotum á Reykjanesskaga sem hófust með gosi í Geldingadölum í Fagradalsfjalli 19. mars 2021. Orð af meiði eldfjallafræða voru plássfrek þetta fyrsta ár en þá voru orðin óróapúls, gosmóða og kvikugangur tilnefnd sem orð ársins hjá Árnastofnun. Næstu tvö ár héldu eldsumbrot áfram án þess að ný eða gömul orð vektu mikla athygli. Á liðnu ári færðist hins vegar fjör í leikinn, alls sex eldgos á einu ári. Ýmis orð gerðu sig gildandi, eins og varnargarður, sprunguhreyfingar og kvikusöfnunarsvæði en mest bar þó á orðinu hraunkæling. Um sumarið 2024 var byrjað að beita hraunkælingu þegar óvíst var um að varnargarðarnir einir myndu duga en hraunkæling er alíslensk uppfinning sem virkaði vel í gosinu á Heimaey árið 1973. Strax árið 2023 var byrjað að viðra þá hugmynd að nota hraunkælingu til að bjarga innviðum á Reykjanesskaga og kemur orðið 161 sinni fyrir í gögnum Risamálheildar það árið. Á fyrstu tíu mánuðum þess árs kemur það hins vegar 1.530 sinnum fyrir. Orðið vakti einnig sérstaka athygli í nýja starfsheitinu hraunkælingarstjóri, sem Helgi Hjörleifsson ber, alltént um sinn.
Önnur orð á listanum eru:
Inngilding
Þyngdarstjórnunarlyf
Gjörunninn
Fjölskyldusameining
Móttökuskóli
Brottfaraúrræði
Skjáhætta
Tómthússkattur
Vindorkuréttindi
Nánar um orð ársins má lesa í pistli á veftímaritinu mannamal.is.