Skip to main content

Fréttir

Nýr öryggisvörður hjá Árnastofnun

Maður með skegg og svört gleraugu.
Jón Tryggvi Sveinsson
SSJ

Jón Tryggvi Sveinsson hóf störf sem öryggisvörður hjá stofnuninni 1. maí. Jón Trausti er með BA-gráðu í bókasafns-og upplýsingafræði og hefur víðtæka starfsreynslu úr atvinnulífinu. Hann hefur meðal annars starfað undanfarin ár við tölvuumsjón og sem húsvörður, nú síðast hjá Brynju leigufélagi. Öryggisverðir Eddu eru nú orðnir fimm talsins og munu þeir sinna öryggisgæslu allan sólarhringinn auk þess sem húsumsjón er hluti af þeirra starfi. 

Við bjóðum Jón Tryggva velkominn til starfa með öflugum hóp öryggisvarða.